Æðstaráð Sovétríkjanna
From Wikipedia, the free encyclopedia
Æðstaráð Sovétríkjanna (rússneska: Верховный Совет), líka kallað Yfirsovétið eða Æðsta sovétið, var æðsta löggjafarþing Sovétríkjanna og það eina sem gat breytt Stjórnarskrá Sovétríkjanna. Forsætisnefnd æðstaráðs Sovétríkjanna var kjörin af Æðstaráðinu og myndaði síðan ríkisstjórn Sovétríkjanna, hæstarétt Sovétríkjanna og skipaði ríkissaksóknara Sovétríkjanna.
Æðstaráðið sat í tveimur deildum sem hvor hafði sama löggjafarvald. Fulltrúar voru kjörnir til 4 ára í senn:
- Sambandsráð Sovétríkjanna með einn fulltrúa fyrir hverja 300.000 íbúa í öllum Sovétríkjunum.
- Þjóðernisráð Sovétríkjanna með 32 fulltrúa frá hverju Sovétlýðveldi, 11 frá hverju sjálfstjórnarlýðveldi, 5 frá hverju sjálfstjórnarhéraði (oblast) og 1 frá hverju sjálfstjórnarumdæmi (okrug).[1]
Eftir 1989 sátu 542 fulltrúar í Æðstaráðinu en höfðu áður verið allt að 1500. Fundum ráðsins var líka fjölgað. Forsætisnefndin fór með völd Æðstaráðsins milli funda.