Þórshöfn (Færeyjum)
höfuðstaður Færeyja / From Wikipedia, the free encyclopedia
Þórshöfn (færeyska: Tórshavn, í daglegu tali stytt í Havn) er höfuðstaður Færeyja og langfjölmennasti bær landsins. Árið 2022 voru íbúarnir um 14.000 en auk þess eru tveir af stærstu bæjum Færeyja, Hoyvík og Argir samvaxnir Þórshöfn og í sveitarfélaginu Þórshöfn eru alls um 23.000 íbúar (2022).
Þórshöfn
Tórshavn (færeyska) | |
---|---|
Viðurnefni: Havn | |
Hnit: 62°0′42″N 6°46′3″V | |
Ríki | Konungsríkið Danmörk |
Land | Færeyjar |
Sveitarfélag | Sveitarfélagið Þórshöfn |
Stjórnarfar | |
• Bæjarstjóri | Heðin Mortensen (Jafnaðarflokkurinn) |
Hæð yfir sjávarmáli | 24 m |
Mannfjöldi (2023) | |
• Samtals | 14.065 |
Póstnúmer | FO-100, FO-110 |
Vefsíða | torshavn |
Þórshöfn er á austurströnd Straumeyjar (færeyska: Streymoy), stærstu eyjar Færeyja, með útsýni yfir til Nólseyjar (færeyska: Nólsoy). Bærinn liggur í skjóli af Nólsey og var því ein besta höfn í Færeyjum, auk þess sem hún er mjög miðsvæðis og nýtur góðs að því. Norðvestan við bæinn er fjallið Húsareyn (347 m) og í suðvestri er Kirkjubøreyn (351 m.) en handan þess er Kirkjubær. Umhverfi Þórshafnar er með láglendari svæðum á eyjunum. Bæjarstjóri frá janúar 2017 er Annika Olsen, Fólkaflokkinum.