Albert 1. Belgíukonungur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Albert 1. (8. apríl 1875 – 17. febrúar 1934) var þriðji konungur Belgíu frá árinu 1909 til dauðadags. Þetta var viðburðaríkt tímabil í sögu Belgíu því í fyrri heimsstyrjöldinni (1914 – 1918) var mikill meirihluti landsins hernuminn af Þjóðverjum. Á tíma heimsstyrjaldarinnar var Albert nefndur „Dátakonungurinn“ („le Roi Soldat“) og Riddarakonungurinn („le Roi Chevalier“). Í valdatíð hans var Versalasamningurinn viðurkenndur, hið belgíska Kongó var endurmetið sem nýlenda belgíska konungsríkisins auk verndarsvæði Þjóðabandalagsins í Rúanda-Úrúndí, Belgía var endurreist úr rústum heimsstyrjaldarinnar og heimurinn upplifði fyrstu fimm ár kreppunnar miklu. Albert var alla tíð mikill fjallgöngugarpur en það kom honum að lokum í koll því hann lést í fjallgönguslysi í austurhluta Belgíu árið 1934. Við honum tók sonur hans, Leópold 3.
| ||||
Albert 1. | ||||
Ríkisár | 23. desember 1909 – 17. febrúar 1934 | |||
Skírnarnafn | Albert Léopold Clément Marie Meinrad | |||
Fæddur | 8. apríl 1875 | |||
Brussel, Belgíu | ||||
Dáinn | 17. febrúar 1934 | |||
Marche-les-Dames, Namur, Belgíu | ||||
Gröf | Église Notre-Dame de Laeken, Brussel | |||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Filippus prins, greifi af Flanders | |||
Móðir | María prinsessa af Hohenzollern-Sigmaringen | |||
Drottning | Elísabet af Bæjaralandi | |||
Börn |
|