Anker Jørgensen
Forsætisráðherra Danmerkur (1922-2016) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Anker Henrik Jørgensen (13. júlí 1922 – 20. mars 2016) var danskur stjórnmálamaður úr Jafnaðarmannaflokknum sem var forsætisráðherra Danmerkur frá 1972 til 1973 og frá 1975 til 1982.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Danmerkur, Þjóðhöfðingi ...
Anker Jørgensen | |
---|---|
Forsætisráðherra Danmerkur | |
Í embætti 5. október 1972 – 19. desember 1973 | |
Þjóðhöfðingi | Margrét 2. |
Forveri | Jens Otto Krag |
Eftirmaður | Poul Hartling |
Í embætti 13. febrúar 1975 – 10. september 1982 | |
Þjóðhöfðingi | Margrét 2. |
Forveri | Poul Hartling |
Eftirmaður | Poul Schlüter |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 13. júlí 1922 Kaupmannahöfn, Danmörku |
Látinn | 20. mars 2016 (93 ára) Kaupmannahöfn, Danmörku |
Þjóðerni | Danskur |
Stjórnmálaflokkur | Jafnaðarmannaflokkurinn |
Maki | Ingrid Pedersen (g. 1948; d. 1997) |
Börn | 4 |
Loka
Anker Jørgensen hafði verið virkur í starfsemi Jafnaðarmannaflokksins frá árinu 1950. Hann hóf feril í stjórnmálum Kaupmannahafnar árið 1964 og sat á danska þinginu frá 1964 til 1994. Hann var formaður Jafnaðarmannaflokksins frá 1972 til 1987 og var forsætisráðherra fyrir flokkinn árin 1972-1973 og 1975-1982 og utanríkisráðherra í stuttan tíma árið 1978.