Ferdinand Magellan
From Wikipedia, the free encyclopedia
Ferdinand Magellan (1480 – 27. apríl 1521; portúgalska Fernão de Magalhães; spænska Fernando eða Hernando de Magallanes) var portúgalskur landkönnuður í þjónustu Spánarkonungs. Hann varð fyrsti Evrópubúinn til að sigla vesturleiðina til Asíu, fyrstur Evrópubúa til að sigla yfir Kyrrahafið og fyrstur til að stjórna leiðangri umhverfis hnöttinn, þótt hann hafi sjálfur ekki verið meðal þeirra sem luku leiðangrinum þar sem hann var drepinn í orrustu við innfædda á Filippseyjum rúmlega ári áður en síðasta skipið náði höfn á Spáni 6. september 1522.
Magellansund á suðurodda Suður-Ameríku er nefnt eftir honum, en sjálfur nefndi hann það Allraheilagrasund.
Magellan uppgötvaði líka Magellanskýin tvö, stóra og litla, sem eru stjörnuþokur sem sjást sunnan miðbaugs.