Hohhot
höfuðborg sjálfstjórnarhéraðs Innri-Mongólíu í Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Hohhot (mongólska: ᠬᠥᠬᠡᠬᠣᠲᠠ; kínverska: 呼和浩特; rómönskun: Hūhéhàotè), áður þekkt sem Kweisui, er höfuðborg sjálfstjórnarhéraðs Innri-Mongólíu í Alþýðulýðveldinu Kína. Hún er stjórnsýslu-, efnahags- og menningarmiðstöð héraðsins. Nafn hennar er dregið úr mongólsku og þýðir „Bláa borgin“. Borgin er staðsett við Dahei-fljót sem rennur til Gulafljóts. Hún er við jaðar mongólsku grassléttunnar, mikilvægasta kvikfjárræktarsvæðis Kína. Borgin er stundum kölluð „kínverska mjólkurborgin“ þar sem höfuðstöðvar tveggja stærstu mjólkurframleiðanda Kína. Hohhot er einnig mikil iðnaðarborg. Árið 2018 var borgin með um 3,1 milljónir íbúa.