Hugspeki
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hugspeki er undirgrein heimspekinnar sem fjallar um eðli hugans, hugarferla, hugrænna eiginleika og meðvitundar. Þessi viðfangsefni fela í sér mörg erfið vandamál og vekja upp erfiðar spurningar og skiptar skoðanir eru um framsetningu þeirra og lausnir og svör við þeim.
- Þessi grein fjallar um heimspekilega sálarfræði sem undirgrein heimspekinnar. Í eldri merkingu gat orðið „hugspeki“ einnig merkt rökhyggju.