Iðnþróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna
sérstofnun Sameinuðu þjóðanna sem aðstoðar ríki við efnahags- og iðnþróun / From Wikipedia, the free encyclopedia
Iðnþróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNIDO) sem er alþjóðastofnun og ein sérstofnana Sameinuðu þjóðanna, aðstoðar ríki við efnahags- og iðnþróun. Hún ýtir sérstaklega undir framfarir í iðnaði þróunarríkja með því að veita tæknilega aðstoð, ráðgjafarþjónustu og þjálfun.[1]
Staðreyndir strax Skammstöfun, Stofnun ...
Iðnþróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna | |
---|---|
Sérstofnun Sameinuðu þjóðanna | |
Skammstöfun | UNIDO (enska) |
Stofnun | 17. nóvember 1966 |
Gerð | Milliríkjastofnun |
Höfuðstöðvar | Vínarborg, Austurríki |
Opinber tungumál | enska, arabíska, franska, kínverska, rússneska og spænska |
Forstjóri | Li Yong |
Móðurfélag | Efnahags- og félagsmálaráð Sameinuðu þjóðanna |
Vefsíða | [https://www.unido.org/ www.unido.org ] |
Loka
Höfuðstöðvar UNIDO eru á skrifstofum Sameinuðu þjóðanna í Vínarborg, Austurríki, en starfsmenn eru í yfir 60 löndum. Árið 2019 voru aðildarríki stofnunarinnar 170. Þau setja UNIDO stefnu, áætlanir og meginreglur á aðalráðstefnu sem haldin er annað hvert ár.