Jóhann Karl 1.
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jóhann Karl I (Juan Alfonso Carlos Víctor María de Borbón y Borbón-Dos Sicilias) (f. 1938) var konungur Spánar frá 1975 til 2014. Hann er sonur Don Juan de Borbón, sem var sonur Alfonsós XIII Spánarkonungs, og móðir Jóhanns var Maria Mercedes af Bourbon-Orleans.
| ||||
Jóhann Karl 1. | ||||
Ríkisár | 22. nóvember 1975 – 19. júní 2014 | |||
Skírnarnafn | Juan Carlos Alfonso Víctor María de Borbón y Borbón-Dos Sicilias | |||
Fæddur | 5. janúar 1938 (1938-01-05) (86 ára) | |||
Róm, Ítalíu | ||||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Don Juan, hertogi af Barselóna | |||
Móðir | Victoria Eugenie af Battenberg | |||
Drottning | Soffía Spánardrottning | |||
Börn | Helena, hertogaynjan af Lugo, Kristín, hertogaynjan af Palma, Mallorca, Felippus 6. Spánarkóngur |
Jóhann Karl varð konungur 1975 er hann tók við af Francisco Franco sem lést það ár. Hann steig af stóli þann 19. júní 2014 og sonur hans, Filippus 6. tók við krúnunni.
Þann 15. mars árið 2020 svipti Filippus konungur föður sinn öllum ellilífeyri og afsalaði sér öllum arfi frá honum. Þetta var gert vegna uppljóstrana um að Jóhann Karl hefði tekið við um 90 milljónum evra frá Sádi-Arabíu í gegnum aflandsreikninga.[1] Í ágúst 2020 fór Jóhann Karl í sjálfskipaða útlegð frá Spáni vegna hneykslisins.[2] Hann settist að í Sameinuðu arabísku furstadæmunum[3] en sneri heim til Spánar í maí árið 2022.[4]