Jiangsu
strandhérað við Gulahaf í austurhluta Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Jiangsu (eða Kiangsu) (kínverska: 江苏; rómönskun: Jiāngsū ) er strandhérað við Gulahaf í austurhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Það er eitt af leiðandi héruðum landsins í fjármálum, menntun, tækni og ferðaþjónustu. Jiangsu er ekki stórt að flatarmáli (102.600 ferkílómetrar) en afar þéttbýlt. Íbúar eru um 84.7 milljónir, langflestir Han-Kínverjar. Höfuðborg héraðsins er Nanjing. Héraðið er almennt álitið eitt þróaðasta hérað Kína.