Kim Jong-il
Einræðisherra í Norður-Kóreu (1941-2011) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Kim Jong-il (16. febrúar 1941 – 17. desember 2011) var leiðtogi Norður-Kóreu árin 1994 til 2011. Hann tók við af föður sínum Kim Il-sung, sem hafði þá stjórnað landinu síðan 1948. Hann var þekktur í Norður-Kóreu sem „leiðtoginn kæri“ (친애하는 지도자, ch'inaehanŭn chidoja).
Staðreyndir strax Æðsti leiðtogi Norður-Kóreu, Forveri ...
Kim Jong-il 김정일 | |
---|---|
Æðsti leiðtogi Norður-Kóreu | |
Í embætti 8. október 1994 – 17. desember 2011 | |
Forveri | Kim Il-sung |
Eftirmaður | Kim Jong-un |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 16. febrúar 1941 Prímorja, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Látinn | 17. desember 2011 (70 ára) Pjongjang, Norður-Kóreu |
Stjórnmálaflokkur | Verkamannaflokkur Kóreu |
Maki | Hong Il-chon (1966–1969); Kim Young-sook (1974–2011) |
Börn | Kim Jong-nam, Kim Sul-song, Kim Jong-chul, Kim Jong-un, Kim Yo-jong |
Foreldrar | Kim Il-sung og Kim Jong-suk |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka
Hann var æðsti yfirmaður herafla landsins og aðalritari í Verkamannaflokki Kóreu, eina leyfilega flokki landsins. Fæðingardagur hans er helsti hátíðardagurinn í Norður-Kóreu ásamt fæðingardegi föður hans.