Lavrentíj Bería
Sovéskur stjórnmálamaður (1899-1953) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Lavrentíj Pavlovítsj Bería (Лавре́нтий Па́влович Бе́рия á kyrillísku letri; ლავრენტი პავლეს ძე ბერია á georgísku) (29. mars 1899 – 23. desember 1953) var sovéskur stjórnmálamaður, hermarskálkur Sovétríkjanna og lengi formaður leyniþjónustunnar NKVD í stjórnartíð Jósefs Stalín. Hann var útnefndur varaforsætisráðherra árið 1941 og gekk til liðs við miðstjórn sovéska kommúnistaflokksins árið 1946.
Lavrentíj Bería Лавре́нтий Бе́рия ლავრენტი ბერია | |
---|---|
Varaforsætisráðherra Sovétríkjanna | |
Í embætti 5. mars 1953 – 26. júní 1953 | |
Forsætisráðherra | Georgíj Malenkov |
Forveri | Vjatsjeslav Molotov |
Eftirmaður | Lazar Kaganovítsj |
Innanríkisráðherra Sovétríkjanna | |
Í embætti 25. nóvember 1938 – 29. desember 1945 | |
Forveri | Níkolaj Jezhov |
Eftirmaður | Sergej Krúglov |
Í embætti 5. mars 1953 – 26. júní 1953 | |
Forveri | Sergej Krúglov |
Eftirmaður | Sergej Krúglov |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 29. mars 1899 Merkheuli, Georgíu, Rússlandi |
Látinn | 23. desember 1953 (54 ára) Moskvu, rússneska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Sovétríkjanna |
Maki | Nina Gegetsjkori |
Starf | Stjórnmálamaður, leynilögreglumaður |
Undirskrift |
Af öllum leynilögreglustjórum Stalíns sat Bería lengst í embætti og naut mestra áhrifa, sérstaklega í og eftir seinni heimsstyrjöldina. Hann stýrði miklum hluta sovéska ríkisins og var í reynd marskálkur Sovétríkjanna sem fór fyrir herdeildum NKVD og njósnaaðgerðum á austurvígstöðvunum í stríðinu. Bería skipulagði einnig byggingu fjölda nýrra Gúlag-vinnubúða og stýrði sérstökum fangabúðum fyrir vísindamenn og vélvirkja.