Magnús hlöðulás
From Wikipedia, the free encyclopedia
Magnús hlöðulás Birgisson (um 1240 – 18. desember 1290) var konungur Svíþjóðar frá 1275, þegar hann þvingaði Valdimar bróður sinn til að segja af sér, og til dauðadags. Áður var hann stundum kallaður Magnús 1. þar sem þeir tveir konungar með Magnúsarnafni sem verið höfðu á undan honum ríktu báðir stutt og ríkisstjórn þeirra var umdeild en nú er hann alltaf nefndur Magnús 3.