Montesúma 2.
From Wikipedia, the free encyclopedia
Montesúma 2. (f. u. þ. b. 1466 – d. 29. júní 1520) var níundi keisari eða tlatoni asteska borgríkisins Tenochtitlán, frá 1502 til 1520. Fyrstu kynni frumbyggjaþjóða Mið-Ameríku og Evrópumanna urðu á valdatíð hans. Spænski landvinningamaðurinn Hernán Cortés tók Montesúma til fanga þegar Spánverjar hófu landvinninga sína gegn Astekaveldinu árið 1520. Montesúma lést stuttu síðar og er ýmist talið að Spánverjar hafi drepið hann eða að Astekar sjálfir hafi grýtt hann til dauða.
Staðreyndir strax
| |||
Montesúma 2. | |||
Ríkisár | 1502/1503–1520 | ||
Skírnarnafn | Motecuhzoma Xocoyotzin | ||
Fæddur | U. þ. b. 1466 | ||
Dáinn | 29. júní 1520 | ||
Tenochtitlán, Mexíkó | |||
Konungsfjölskyldan | |||
Faðir | Axayacatl | ||
Móðir | Xochicueyetl | ||
Kona | Teotlalco Tlapalizquixochtzin | ||
Börn | Isabel Moctezuma Pedro Moctezuma Mariana Leonor Moctezuma Chimalpopoca Tlaltecatzin |
Loka