Notandi:ArcticRot/sandbox
From Wikipedia, the free encyclopedia
Burnirót (eða burn (kvk) [2], Arctic Root, Golden Root, Rose Root, einnig verið nefnd Blóðrót (fræðiheiti: Rhodiola rosea) er fjölær jurt af helluhnoðraætt sem vex á köldum stöðum, svo sem á norðurslóðum og í fjalllendi í Evrópu, Asíu og Norður-Ameríku. Hún vex einna helst í þurrum, sendnum jarðvegi allt frá láglendi og upp í 2.280 metra hæð. Burnirót er algeng um allt Ísland en vegna þess hve sauðfé er sólgið í hana hefur hún horfið af stórum svæðum.
Burnirót | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Karlplanta Burnirótarinnar, með gulum blómum. | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Rhodiola rosea L. | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Sedum rosea (L.) Scop. |
Hún á sér langa sögu og rót og stilkur plöntunnar hefur lengi verið notuð til lækninga. Helst er hún notuð við þunglyndi, til að auka einbeitingu og bæta árangur í íþróttum. Adaptógenísk áhrif hennar eiga að stuðla að almennri vellíðan og jafnvægi í líkamanum. Rannsóknir hafa ekki sannað meinta verkun og gera þarf frekari rannsóknir til að staðfesta virkni. Að öðru leiti er burnirótin almennt talin örugg til inntöku en ekki skal neyta hennar lengur en í 2 vikur í senn og passa að halda sig við ráðlagða dagsskammta.