Rigoberta Menchú Tum
From Wikipedia, the free encyclopedia
Rigoberta Menchú Tum (f. 9. janúar 1959) er gvatemalskur aðgerðasinni, rithöfundur og stjórnmálamaður af ætt Quiché-frumbyggja. Hún hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 1992 fyrir baráttu sína í þágu réttinda kvenna og frumbyggja á tíma borgarastyrjaldarinnar í Gvatemala (1960–1996). Menchú er í dag góðgerðasendiherra fyrir UNESCO og hefur lengi verið virk í stjórnmálum Gvatemala. Hún bauð sig fram til forseta árin 2007[1] og 2011 en náði litlu fylgi.
Staðreyndir strax Fædd, Þjóðerni ...
Rigoberta Menchú Tum | |
---|---|
Fædd | 9. janúar 1959 (1959-01-09) (65 ára) |
Þjóðerni | Gvatemölsk |
Störf | Aðgerðasinni, rithöfundur, stjórnmálamaður |
Trú | Kaþólsk |
Maki | Ángel Canil (g. 1995) |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (1992) |
Loka