Hirohito
Keisari Japans (1926-1989) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Shōwa keisari (昭和天皇, Shōwa Tennō) (29. apríl 1901 – 7. janúar 1989) var 124. keisari Japans, en hann ríkti frá 25. desember 1926 þar til hann lést árið 1989. Hann er sá keisari sem lengst hefur setið, eða rúm 62 ár. Valdatímabil hans var nefnt tímabil hins upplýsta friðar (japanska:昭和時代, Shōwa-jidai). Hann varð formlega krónprins 2. nóvember 1916 og 1922 var hann sá fyrsti úr þeirri stétt til að ferðast út fyrir Japan þegar hann fór um England, Holland, Belgíu, Frakkland Ítalíu og Vatíkanið í hálfsárs ferð sinni um Evrópu. Á vesturlöndum er hann betur þekktur undir nafninu Hirohito.
Staðreyndir strax
| ||||
Shōwa 昭和天皇 | ||||
Ríkisár | 25. desember 1926 – 7. janúar 1989 | |||
Skírnarnafn | Hirohito | |||
Fæddur | 29. apríl 1901 | |||
Tōgū-höll, Aoyama, Tókýó, Japan | ||||
Dáinn | 7. janúar 1989 (87 ára) | |||
Fukiage-höll, Japan | ||||
Gröf | Musashi-grafreitur, Hachiōji, Tókýó, Japan | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Taishō keisari | |||
Móðir | Teimei keisaraynja | |||
Keisaraynja | Kōjun | |||
Börn | Shigeko Higashikuni, Sachiko, Kazuko Takatsukasa, Atsuko Ikeda, Akihito, Masahito, Takako Shimazu |
Loka
Sonur hans er Akihito, fyrrum keisari Japans.