Souvanna Phouma
Forsætisráðherra Laos (1901–1984) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Prins Souvanna Phouma (7. október 1901 – 10. janúar 1984) var leiðtogi hinna hlutlausu í átökum vinstri og hægri í Laos á árunum 1945 til 1975. Hann var einnig mörgum sinnum forsætisráðherra í konunglegu ríkisstjórninni í Laos, 1951 – 1952, 1956 – 1958, 1960 og 1962 – 1975.
Souvanna Phouma ເຈົ້າສຸວັນນະພູມາ | |
---|---|
Forsætisráðherra Laos | |
Í embætti 21. nóvember 1951 – 20. október 1954 | |
Í embætti 21. mars 1956 – 17. ágúst 1958 | |
Í embætti 30. ágúst 1960 – 13. desember 1960 | |
Í embætti 23. júní 1962 – 2. desember 1975 | |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 7. október 1901 Luang Prabang, Laos |
Látinn | 10. janúar 1984 (82 ára) Vientiane, Laos |
Stjórnmálaflokkur | Framsóknarflokkur Laos (Phak Xat Kao Na) |
Maki | Aline Claire Allard |
Souvanna Phouma fæddist inn í varakonugsfjöldskylduna í Luang Prabang, hann var náfrændi Sisavangvong konungs Laos. Hann fékk franska menntun í Hanoi, Paris og Grenoble, þar útskrifaðist hann sem arkitekt og byggingaverkfræðingur.
Souvanna Phouma, ásamt hálfbræðrum sínum tveim, Phetsarath (1891-1959) og Souphanouvong (1909-1995), hóf afskipti af stjórnmálum í lok seinni heimsstyrjaldarinnar þegar hreyfingin Lao Issara var stofnuð til að berjast gegn frönskum yfirráðum yfir Laos.