Symon Petljúra
Úkraínskur herforingi (1879-1926) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Symon Vasylovytsj Petljúra (úkraínska: Си́мон Васи́льович Петлю́ра) var úkraínskur stjórnmálamaður, herforingi og blaðamaður. Hann var leiðtogi úkraínska hersins og forseti úkraínska alþýðulýðveldisins á stuttum tíma úkraínsks sjálfstæðis frá 1918 til 1921, eftir hrun rússneska keisaradæmisins árið 1917.
Symon Petljúra Симон Петлюра | |
---|---|
Forseti Alþýðulýðveldisins Úkraínu[lower-alpha 1] | |
Í embætti 11. febrúar 1919 – 25. maí 1926 | |
Forsætisráðherra | Serhíj Ostapenko Borys Martos Ísaak Mazepa Vjatsjeslav Prokopovytsj |
Forveri | Volodymyr Vynnytsjenko |
Eftirmaður | Andríj Lívytskyj |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 22. maí 1879 Poltava, Úkraínu, rússneska keisaradæminu |
Látinn | 25. maí 1926 (47 ára) París, Frakklandi |
Þjóðerni | Úkraínskur |
Stjórnmálaflokkur | Úkraínski sósíaldemókratíski verkamannaflokkurinn |
Maki | Olha Petljúra (1885–1959, g.1910) |
Börn | 1 |
Háskóli | Kirkjuháskólinn í Poltava |
Undirskrift |
Petljúra er umdeild persóna og mikið hefur verið deilt um arfleifð hans. Sumir úkraínskir þjóðernissinnar líta á hann sem sjálfstæðishetju en hins vegar hefur Petljúra víða verið fordæmdur vegna fjöldamorða á Gyðingum (pogrom) sem framin voru af hermönnum hans. Í orði kveðnu fordæmdi Petljúra slík morð og lagði við þeim þungar refsingar, en gagnrýnendur hans telja hann ekki hafa gert nóg til að stöðva ofbeldið. Petljúra var ráðinn af dögum í París árið 1926 af Sholem Schwarzbard, Gyðingi sem vildi hefna fjöldamorðanna. Schwarzbard var í kjölfarið sýknaður af vígi Petljúra í ljósi Gyðingaofsóknanna sem höfðu viðgengist undir stjórn hans.