Wallis Simpson
From Wikipedia, the free encyclopedia
Wallis Simpson, hertogaynja af Windsor (fædd undir nafninu Bessie Wallis Warfield; 19. júní 1896 – 24. apríl 1986) var bandarísk yfirstéttarkona sem varð fræg á fjórða áratugi 20. aldar vegna ástarsambands síns við breska krúnuarfann Játvarð prins. Simpson var ekki álitin ákjósanlegt kvonfang fyrir Játvarð þar sem hún var tvífráskilin þegar þau tóku saman og var talin ólíkleg til að geta fætt honum erfingja.
Wallis Simpson | |
---|---|
Fædd | 19. júní 1896 |
Dáin | 24. apríl 1986 (89 ára) |
Maki | Earl Winfield Spencer Jr. (g. 1916; skilin 1927) Ernest Aldrich Simpson (g. 1928; skilin 1937) Játvarður prins, hertogi af Windsor (g. 1937; d. 1972) |
Foreldrar | Teackle Wallis Warfield og Alice Montague |
Þegar Játvarður varð konungur Bretlands árið 1936 lýsti hann yfir vilja til að kvænast Wallis og taka hana fyrir drottningu, en andstaða ríkisstjórnarinnar við þennan ráðahag var slík að Játvarður ákvað að afsala sér krúnunni frekar en að valda stjórnarkreppu með hjónabandinu. Wallis og Játvarður giftust árið 1937 og voru titluð hertogahjón af Windsor til æviloka. Samband þeirra við bresku konungsfjölskylduna var ætíð stirt og þau bjuggu lengst af í útskúfun frá bresku hirðinni í París.