William Lyon Mackenzie King
10. forsætisráðherra Kanada (1874-1950) / From Wikipedia, the free encyclopedia
William Lyon Mackenzie King (17. desember 1874 – 22. júlí 1950) var helsti stjórnmálaleiðtogi Kanada frá þriðja áratugi 20. aldar fram á fimmta áratuginn. Hann var forsætisráðherra Kanada á árunum 1921–1926, 1926–1930 og 1935–1948. Hann er einna helst þekktur fyrir að leiða Kanada í gegnum seinni heimsstyrjöldina, en á stríðsárunum safnaði stjórn hans saman kanadískum fjármunum, birgðum og sjálfboðaliðum til að koma Bretlandi til hjálpar. Auk þess átti King drjúgan þátt í að byggja upp velferðarríki í Kanada. King sat lengst allra forsætisráðherra Kanada, í alls 21 ár og 154 daga.
Staðreyndir strax Forsætisráðherra Kanada, Þjóðhöfðingi ...
William Lyon Mackenzie King | |
---|---|
Forsætisráðherra Kanada | |
Í embætti 29. desember 1921 – 28. júní 1926 | |
Þjóðhöfðingi | Georg 5. |
Landstjóri | Byng lávarður af Vimy |
Forveri | Arthur Meighen |
Eftirmaður | Arthur Meighen |
Í embætti 25. september 1926 – 7. ágúst 1930 | |
Þjóðhöfðingi | Georg 5. |
Landstjóri | Byng lávarður af Vimy Markgreifinn af Willingdon |
Forveri | Arthur Meighen |
Eftirmaður | R. B. Bennett |
Í embætti 23. október 1935 – 15. nóvember 1948 | |
Þjóðhöfðingi | Georg 5. Játvarður 8. Georg 6. |
Landstjóri | Jarlinn af Bessborough Tweedsmuir lávarður Jarlinn af Athlone Alexander vísigreifi |
Forveri | R. B. Bennett |
Eftirmaður | Louis St. Laurent |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 17. desember 1874 Kitchener, Ontario, Kanada |
Látinn | 22. júlí 1950 (75 ára) Chelsea, Quebec, Kanada |
Stjórnmálaflokkur | Frjálslyndi flokkurinn |
Trúarbrögð | Spíritismi |
Háskóli | University-háskóli Osgoode Hall-lagaskóli Chicago-háskóli Harvard-háskóli |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka