Xining
höfuðborg Qinghai héraðs í vesturhluta Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Xining (eða Sining) (kínverska: 西宁市; rómönskun: Xīníng) er höfuðborg Qinghai héraðs í Alþýðulýðveldinu Kína. Borgin er staðsett í austurhluta héraðsins, í frjósamri fjallalægð í dalnum við Huang-ána, sem er ein þveráa Gulafljóts. Qinghai er stærsta borgin á Tíbet hásléttunni. Hún var mikilvæg miðstöð Silkivegarins, hinnar fornu verslunarleiðar sem tengdi Kína við Miðjarðarhafið. Hún er iðnaðarborg og miðstöð stjórnmála, mennta og menningar héraðsins. Íbúar Xining voru árið 2010 um 2.2 milljónir.