Þýðing
From Wikipedia, the free encyclopedia
Þýðing er túlkun á merkingu talaðs eða ritaðs máls úr einu tungumáli á annað. Alexander Púskin kallaði þýðandann „boðbera mannsandans“ og Vladimir Nabokov sagði að það að þýða úr einu tungumáli á annað væri hægfara næturferðalag frá einu þorpi til þess næsta með aðeins kerti til að lýsa sér leið.[1] Magnús Magnússon þýðandi og ritstjóri, sagði að hin vandrataði vegur þýðandans „væri að vera höfundinum trúr, án þess að láta trúmennskuna bitna á því máli sem þýtt er á]“.[2] Bestu þýðendurnir eru oft sagðir þeir sem kunna tungumálið sem þeir þýða úr mjög vel, en kunna tungumálið sem þeir þýða á fullkomlega og málsögu þess í grunninn.
- Fyrir þýðingu forritunarmála, sjá þýðandi (tölvunarfræði).
Frá því tölvur komu fram á sjónarsviðið hafa verið gerðar tilraunir til að þýða texta með gervigreind. Þá er oftast talað um vélþýðingar og er þekktasta forrit sem notað er fyrir vélþýðingar án efa Google Translate.