Íslenska Wikipedia
íslensk útgáfa af Wikipediu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Íslenska Wikipedia var stofnuð 5. desember 2003 og er íslensk útgáfa af Wikipediu. Íslenska Wikipedian er með yfir 50 þúsund greinar og innan við 20 virka notendur alla jafnan.
Í tilefni af tíu ára afmæli íslensku Wikipediu 5. desember 2013 var haldið málþing í Landsbókasafni Íslands.[1] Af sama tilefni voru 30 ljósmyndir teknar vegna óeirðanna á Austurvelli 1949 sem höfðu ekki áður komið fyrir sjónir almennings fengnar skannaðar frá Þjóðskjalasafni Íslands og settar á Wikimedia Commons.[2]