A Portuguesa
From Wikipedia, the free encyclopedia
A Portuguesa er þjóðsöngur Portúgals. Hann var skrifaður af Henrique Lopes de Mendonça (texti) og Alfredo Keil (tónlist) eftir endurvakningu landsins þegar Breta lögðu afarskilmála sína fyrir Portúgali (þar sem kveðið var á um brotthvarf Portúgala frá Angóla og Mósambík). A Portuguesa var tekinn upp sem þjóðsöngur landsins þegar fyrsta lýðveldið var stofnað í landinu árið 1910 og tók þar með við af 'O Hino da Carta'.
Titill þjóðsöngsins merkir Portúgalar (í kvenkyni) í merkingunni 'söngur Portúgals'.