Aleksandr Kerenskíj
Rússneskur stjórnmálamaður / From Wikipedia, the free encyclopedia
Aleksandr Fjodorovítsj Kerenskíj (rússneska: Алекса́ндр Фёдорович Ке́ренский; 4. maí 1881[1] – 11. júní 1970) var rússneskur lögfræðingur sem gegndi lykilhlutverki í rússnesku byltingunni árið 1917. Eftir febrúarbyltinguna árið 1917 sem neyddi Nikulás 2. til að segja af sér myndaði hann rússneska bráðabirgðastjórn, fyrst sem dómsmálaráðherra, svo hermálaráðherra og loks forsætisráðherra. Kerenskíj var meðlimur í hófsamari væng Trúdóvikahópsins, sósíalískum byltingarflokk, og einnig varaformaður Pétursborgarsovétsins. Þann 7. nóvember var ríkisstjórn hans steypt af stóli af Bolsévikum undir stjórn Vladímírs Lenín í októberbyltingunni. Kerenskíj eyddi því sem eftir var ævinnar í útlegð í París og New York og vann lengi hjá Hoover-stofnuninni.
Aleksandr Kerenskíj Алекса́ндр Ке́ренский | |
---|---|
Forsætisráðherra rússnesku bráðabirgðastjórnarinnar | |
Í embætti 21. júlí 1917 – 7. nóvember 1917 | |
Forveri | Georgíj Lvov |
Eftirmaður | Vladímír Lenín (sem formaður þjóðfulltrúaráðs) |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 4. maí 1881 Símbírsk, rússneska keisaradæminu |
Látinn | 11. júní 1970 (89 ára) New York, Bandaríkjunum |
Stjórnmálaflokkur | Trúdóvikar |
Maki | Olga Lvovna Baranvskaja (g. 1904, sk. 1939) Lydia „Neil“ Tritton (g. 1939) |
Börn | Oleg, Gleb |
Háskóli | Ríkisháskólinn í Sankti Pétursborg |
Starf | Lögfræðingur, stjórnmálamaður |
Undirskrift |