Alexander Hamilton
From Wikipedia, the free encyclopedia
Alexander Hamilton (11. janúar 1755 – 12. júlí 1804) var fyrsti fjármálaráðherra Bandaríkjanna (1789-1795) og einn hinna svokölluðu „landsfeðra“ Bandaríkjanna. Í bandarísku byltingunni barðist Hamilton við hlið George Washington og var einn nánasti ráðgjafi hans. Að stríði loknu, árið 1782, var Hamilton kosinn á Sambandsþingið sem fulltrúi New York, en hann sagði því starfi lausu til að helga sig lögmennsku og bankarekstri.
Staðreyndir strax Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, Forseti ...
Alexander Hamilton | |
---|---|
Fjármálaráðherra Bandaríkjanna | |
Í embætti 11. september 1789 – 31. janúar 1795 | |
Forseti | George Washington |
Forveri | Embætti stofnað |
Eftirmaður | Oliver Wolcott Jr. |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 11. janúar 1755 Charlestown, Nevis, Hléborðseyjum |
Látinn | 12. júlí 1804 (49 ára) New York-borg, New York, Bandaríkjunum |
Þjóðerni | Bandarískur |
Stjórnmálaflokkur | Sambandssinnaflokkurinn |
Maki | Elizabeth Schuyler (g. 1780) |
Börn | 8 |
Háskóli | Columbia-háskóli |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift |
Loka