Anna Nicole Smith
From Wikipedia, the free encyclopedia
Vickie Lynn Hogan betur þekkt sem Anna Nicole Smith (28. nóvember 1967 – 8. febrúar 2007) var bandarísk fyrirsæta, raunveruleika stjarna í sjónvarpi, leikkona og kyntákn. Hún hlaut sínar fyrstu vinsældir þegar að hún sat fyrir nakin hjá Playboy, sem leiddi til þess að hún var valin leikfélagi ársins 1993. Hún varð þekkt sem fyrirsæta eftir að hún sat fyrir hjá vinsælum fatnaðar vörumerkjum þar á meðal Guess, Lane Bryant og H&M. Hún lék einnig í nokkrum kvikmyndum og var með sinn eiginn raunveruleikaþátt The Anna Nicole Show.
Anna Nicole Smith | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fædd | 28. nóvember 1967(1967-11-28) Houston, Texas, USA |
Dáin | 8. febrúar 2007 (39 ára) |
Önnur nöfn | Vickie Lynn Hogan |
Störf | Fyrirsæta, leikkona, sjónvarpspersónuleiki |
Helstu hlutverk | |
Tanya Peters í Naked Gun 3 1/3: The final insult |
Smith var fædd í Texas, þar sem að hún var alin upp af einstæðri móður sinni. Hún hætti í gagnfræðiskóla og stakk af frá móður sinni til þess að gifta sig aðeins 17 ára gömul. Annað hjónaband hennar við milljarðamæringinn J. Howard Marshall fékk mikla athygli fjölmiðla en hann var 63 árum eldri en hún og bundinn í hjólastól sem leiddi í vangaveltur um hvort að hún hefði gifst honum fyrir peningana sína. Eftir dauða hans, fór hún í gegnum langar deilur við fjölskyldu hans um hver ætti að erfa hann.
Hún lést 39 ára gömul, eftir ofskammt af lyfseðliskyldum lyfjum. Í marga mánuði eftir andlát hennar stóðu deilur um hvar ætti að grafa hana og hver væri raunverulegur faðir nýfæddrar dóttur hennar, Dannielynn.