From Wikipedia, the free encyclopedia
Aragónít er með sömu efnasamsetningu og kalsít. Nafnið dregur af héraðinu Aragon á Spáni.
Geislar grófari en hjá geislasteinum (zeólítum) og sjást í þversprungum. Þegar það er ferskt er það glært og glergljáandi. Finnst oftast veðrað, þá gráleitt og gljái daufur.
Finnst allvíða á Íslandi, aðallega á háhitasvæðum. Holufylling í storkubergi, aðallega í andesíti og basalti. Óstöðugt við venjulegan hita og þrýsting.
Þegar aragónít er hitað upp í 400 °C án aukins þrýstings, umbreytist það í kalsít.
Algengt í skeljum sjávardýra.
Til er hvítt afbrigði af aragóníti sem kallast járnblóm. Útlitið líkist kóralgróðri en ekkert járn finnst í því, þó að það myndist við veðrun járnsambanda.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.