![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d2/Logo_AC_Clean.png/640px-Logo_AC_Clean.png&w=640&q=50)
Hringborð Norðurslóða
From Wikipedia, the free encyclopedia
Hringborð Norðurslóða (enska: Arctic Circle) er hópur sem stofnaður var af Ólafi Ragnari Grímssyni, fyrrum forseta Íslands, ásamt Alice Rogoff, fyrrum eiganda fjölmiðilsins Alaska Dispatch, Kuupik Kleist, fyrrum forsætisráðherra Grænlands, og fleiri aðilum. Tilgangur samtakanna er að vera umræðuvettvangur milli stjórnmála- og viðskiptaleiðtoga, umhverfissérfræðinga, vísindamanna, fulltrúa frumbyggja og annarra alþjóðlegra hagsmunaaðila um vandamál sem steðja að Norðurslóðum vegna loftslagsbreytinga og bráðnunar hafíss.[1] Hringborð Norðurslóða skilgreinir sig sem alþjóðasamtök með höfuðstöðvar í Reykjavík á Íslandi.[2]
Staðreyndir strax Stofnun, Gerð ...
Hringborð Norðurslóða | |
---|---|
![]() | |
Stofnun | 2013; fyrir 11 árum (2013) |
Gerð | Óháð samtök |
Höfuðstöðvar | ![]() |
Formaður | Ólafur Ragnar Grímsson |
Vefsíða | arcticcircle.org |
Loka