![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b3/Balkanpeninsula-is.png/640px-Balkanpeninsula-is.png&w=640&q=50)
Balkanskagi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Balkanskagi er landsvæði í Suðaustur-Evrópu. Landsvæðið er ekki eiginlegur skagi í landfræðilegum skilningi en er þó umlukið höfum að vestan, sunnan og austan. Það dregur nafn sitt af Balkan-fjallgarðinum í Búlgaríu og Serbíu. Alls er landsvæðið 728.000 km². Á Balkanskaga eru yngsti berggrunnur Evrópu.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b3/Balkanpeninsula-is.png/320px-Balkanpeninsula-is.png)
Í norðri eru mörkin miðuð við fljótin Dóná, Sava og Kupa.
Í vesturátt er Adríahaf, í suðri Jónahaf, Eyjahaf og Marmarahaf og í austri Svartahaf.
Þau lönd sem eru á Balkanskaganum, að öllu leyti eða hluta til, eru
- Albanía 100%
- Bosnía og Hersegóvína 100%
- Búlgaría 100%
- Grikkland 100%
- Kosóvó 100%(lýsti einhliða yfir sjálfstæði frá Serbíu 17. febrúar 2008)
- Norður-Makedónía 100%
- Svartfjallaland 100%
- Serbía 73%