![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8a/Larynx_external_en.svg/langis-640px-Larynx_external_en.svg.png&w=640&q=50)
Barkakýli
From Wikipedia, the free encyclopedia
Barkakýlið er líffæri sem er að finna í hálsi froskdýra, skriðdýra (ásamt fuglum) og spendýra (ásamt mönnum) sem hefur hlutverki að gegna í öndun, myndun hljóða (það er að segja tali í mönnum) og vörn barkans gegn kæfingu. Barkakýlið hefur áhrif á tónhæð og styrk hljóða. Í barkakýlinu eru raddböndin sem eru mikilvæg í myndun hljóða og þau er að finna undir staðnum þar sem kokið skiptist í barkann og vélindað.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/8a/Larynx_external_en.svg/640px-Larynx_external_en.svg.png)
Barkakýlið samanstendur af brjóski og er þakið með slímhimnu. Undir slímhimnunni eru vöðvar sem teygja raddböndin þannig að þau breyti loftflæðinu úr lungunum. Barkakýlið myndar tenginguna á milli efri og neðri öndunarveganna, og það lokast yfir neðri öndunarveginn við neyslu matar eða drykkjar.