„Brautryðjendaæska Kína“ (kínverska: 中国少年先锋队; rómönskun: Zhōngguó shàonián xiānfēngduì) eru pólitísk samtök barna á aldrinum sex til fjórtán ára í Alþýðulýðveldinu Kína. Samtökin eru rekin af Æskulýðsfylkingu Kínverska Kommúnistaflokksins. Fjöldi ungra brautryðjenda er í dag um 130 milljónir barna.[2]

Thumb
„Brautryðjendaæska Kína“ við skólasetningu. Flestir grunnskólar Kína krefjast þess að nemendur gangi til liðs við þessi pólitísku samtök fyrir 6-14 ára börn.
Thumb
„Brautryðjendaæska Kína“ stendur heiðursvörð við minnisvarða um „hetjur fólksins“ á Torgi hins himneska friðar í Peking borg Kína.
Thumb
Rauðir hálsklútar, einkennisklæðnaður ungra brautryðjenda, er algeng sjón í Kína.
Thumb
„Litlu rauðu varðliðarnir“ í menningarbyltingunni (1966–1978) tóku þátt í athöfnum eins og að „stöðva kennslu til byltingar“ og gagnrýna kennara.[1]

Saga

Rætur samtakanna liggja aftur til ársins 1924. Fram að stofnun Alþýðulýðveldisins árið 1949 ráku kommúnistar ýmis ungliðafélög á þeim landssvæðum sem þeir réðu. Fyrirmyndin var fengin frá félagsskap „ungra brautryðjenda“ í Sovétríkjunum.[3] Samtökin voru formlega stofnuð af Kommúnistaflokki Kína 13. október 1949. Þau tóku núverandi nafn árið 1953.

Brautryðjendaæska Kína var lögð niður tímabundið í menningarbyltingunni (1966–1978). Í stað hennar komu samtökin „Litlu rauðu varðliðarnir“ sem voru yngri útgáfan af hinu róttæku „Rauðu varðliðum“ menningarbyltingarinnar. Brautryðjendaæskan hóf aftur starfssemi í október 1978.

Samtökunum svipar til brautryðjendahreyfinga barna sem eru til eða voru, í ríkjum kommúnista víða um heim.

Hugmyndafræði

Samkvæmt stefnuskrá samtakanna byggir hugmyndafræðin „á fræðilegu kerfi sósíalismans með kínverskum einkennum“.[4] Mottóið er: „Til baráttu fyrir málstað kommúnismans, vertu viðbúinn!“. Háttsemi ungra brautryðjenda á að byggja á „heiðarleika, hugrekki, lífskrafti, og einingu“. [5] [6]

Loforð og skuldbinding ungra brautryðjenda (og þar með flestra kínverskra gunnskólanema) við aðildina er:

„Ég er meðlimur í Brautryðjendaæsku Kína. Undir fána ungra brautryðjenda sver ég Kommúnistaflokki Kína ást mína, móðurlandinu og fólkinu. Ég mun leggja hart að mér í námi, efla og undirbúa, svo styrkur minn verði til málstaðs kommúnismans.“

Ungum brautryðjendum er ætlað samkvæmt Xi Jinping, forseta Kína „...að elska landið, fólkið og flokkinn og byggja upp göfuga hugsjónir, hlúa að góðu siðferði, læra og byggja upp sterkan líkama.“[7]

Aðild

Flestir grunnskólarnir Kína krefjast þess að nemendur, að þeim yngstu undanskildum, gangi til liðs við „Brautryðjendaæsku Kína“, pólitísk samtök barna á aldrinum sex til fjórtán ára.

Rauður hálsklútur ungra brautryðjenda er einkennisklæðnaður félagsmanna. Við vígsluathöfn binda núverandi meðlimir klútana á nýliðana.[8] Börn klædd rauðum hálsklútum eru algeng sjón í Kína.

Við lok grunnskólans eru flestir nemendur orðnir félagar í Brautryðjendaæskunni. Við fjórtán ára aldur hætta þeir sjálfkrafa aðild að samtökunum og geta þá gengið í Æskulýðsfylkingu Kínverska Kommúnistaflokksins (CCP). Í dag eru um 130 milljónir barna í Brautryðjendaæsku Kína.[2]

Tengt efni

Heimildir

Tilvísanir

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.