![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/97/Iceland-bays.svg/langis-640px-Iceland-bays.svg.png&w=640&q=50)
Breiðafjörður
fjörður við vesturströnd Íslands / From Wikipedia, the free encyclopedia
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/97/Iceland-bays.svg/350px-Iceland-bays.svg.png)
Faxaflói, Breiðafjörður og Húnaflói eru stærstir.
Breiðafjörður er stór og grunnur fjörður við vesturströnd Íslands, um 50 km breiður og 125 km langur. Breiðafjörður er á milli Vestfjarðakjálkans og Snæfellsness og er umkringdur fjöllum á þrjá vegu og ganga margir firðir inn úr honum, stærstur þeirra Hvammsfjörður í austurátt. Nokkur þéttbýlissvæði eru að sunnanverðu við fjörðinn en engin norðanmegin.