Dalia Grybauskaitė
Forseti Litháens / From Wikipedia, the free encyclopedia
Dalia Grybauskaitė (f. 1. mars 1956) er fyrrverandi forseti Litáens. Hún er fyrsta konan sem hefur gegnt forsetaembættinu og fyrsti forseti landsins sem hefur gegnt tveimur kjörtímabilum í röð. Grybauskaitė hefur áður verið varautanríkisráðherra og fjármálaráðherra Litáens og framkvæmdastjóri fjármagns og mannauðs í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins frá 2004 til 2009. Hún var fyrsti Litáinn sem vann í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Staðreyndir strax Forseti Litáens, Forsætisráðherra ...
Dalia Grybauskaitė | |
---|---|
Forseti Litáens | |
Í embætti 12. júlí 2009 – 12. júlí 2019 | |
Forsætisráðherra | Andrius Kubilius Algirdas Butkevičius Saulius Skvernelis |
Forveri | Valdas Adamkus |
Eftirmaður | Gitanas Nausėda |
Persónulegar upplýsingar | |
Fædd | 1. mars 1956 (1956-03-01) (68 ára) Vilníus, litáíska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum |
Þjóðerni | Litáísk |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundin |
Háskóli | Ríkisháskólinn í Sankti Pétursborg Háskólinn í Georgetown |
Undirskrift |
Loka
Grybauskaitė er stundum kölluð „litáíska járnfrúin“ vegna staðfestu sinnar og vegna þess að hún er með svart belti í karate.