Efnavopn
From Wikipedia, the free encyclopedia
Efnavopn er vopn sem notast við eituráhrif efnasambands til þess að skaða, drepa eða gera óvini óvirka.
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Aðalvandamál þessarar greinar: Ýmislegt furðulegt í þessari grein, hvaða efnavopn voru óumdeild á þessum tíma? |
Hugtakið er illa skilgreint og hefur margar merkingar. Í Genfarsáttmálanum frá 1925 eru efnavopn skilgreind sem þær gastegundir sem valda köfnun eða eitrun og aðrar gastegundir sem notaðar eru í hernaði ásamt vökvum, öðrum efnum og búnaði sem er notaður í þeim tilgangi. Í íslenskum lögum eru efnavopn skilgreind sem eiturefni og forstigsefni þeirra, nema þau séu ekki ætluð til hernaðarlegra nota sem og skotfæri og tæki sem sérstaklega eru gerð til að valda bana eða öðrum skaða með eituráhrifum eiturefna og að lokum hvern þann búnað sem sérstaklega er gerður til að nota við beitingu slíkra skotfæra og tækja. Til dæmis er af þessum skilgreiningum báðum óljóst hvort eigi að telja til efnavopn þau vopn sem ætluð eru að valda dýrum eða plöntum skaða með eituráhrif tiltekinna efnasambanda á þær lífverur og um það er deilt, hvort slíkt eigi að gera. Í þessarri grein er stuðst við tiltölulega víða skilgreiningu á því, hvað séu efnavopn.