Efnishamur
From Wikipedia, the free encyclopedia
Efnishamur eða efnafasi í efnafræði er þrýstings- og hitastigsháð ástand efna. Hamur efnisins stjórnar stórsæjum eiginleikum (þ.e. eiginleikar mikils magns efnisins svo sem vatn í glasi eða steinn) þess og er afleiðing af víxlverkun einda efnisins hver við aðra á smásæjum skala (þ.e. eiginleikar þeirra sameinda og frumeinda sem efnið er samansett úr). Fasarnir vökvi, gas og fast efni eru þekktastir. Minna þekkt eru sem dæmi rafgas og kvarka-límeindarafgas, Bose-Einstein þétting og oddskiptaeindaþétting, sérstætt efni, vökvakristall, ofurstraumefni og ofurþéttefni og einnig meðseglunar- og járnseglunarhamir segulmagnaðra efna.