From Wikipedia, the free encyclopedia
Öglir (fræðiheiti: Archaeopteryx, úr grísku: ἀρχαίος „forn“ + πτερυξ „vængfjöður“) lifði á síðjúra og árkrít þar sem nú er Þýskaland, og er elsti og frumstæðasti fugl sem þekktur er. Uppgötvun fyrsta sýnisins, Archaeopteryx lithographica, árið 1861, tveimur árum eftir að Charles Darwin gaf út Uppruna tegundanna, setti af stað miklar umræður um þróun og hlutverk millistigssteingervinga (e. transitional fossils).
Öglir Tímabil steingervinga: Síðjúra | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Líkan af Archaeopteryx lithographica til sýnis í Oxford University Museum | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Archaeopteryx lithographica Meyer, 1861 | ||||||||||||||
Síðar hafa fundist fleiri sýni af ögli, og eru þau nú orðin tíu talsins. Öll sýni sem fundist hafa eru úr kalksteinslagi við bæinn Solnhofen í Þýskalandi. Hinn fíni kalksteinn, sem geymir nákvæmt mót af smáatriðum í líkamsbyggingu sem oftast sjást ekki í steingervingum, er notaður í steinprentsplötur, en til þess vísar lýsingin lithographica („steinprents-“).
Öglirinn sýnir mörg einkenni þeirrar greinar risaeðla sem nefnist þrítáungar (Theropoda). Uppgötvun nokkurra vel geymdra fiðraðra risaeðla í Kína á tíunda áratugnum staðfesti í augum margra vísindamanna tengslin milli risaeðla og fugla.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.