Forritunarmál
tilbúið mál notað til að skrifa forrit sem stýra tölvum / From Wikipedia, the free encyclopedia
Forritunarmál er mál sem nota má til að lýsa forriti sem stýrir tölvum. Áður en tölvan getur keyrt forritið þarf að þýða það yfir á vélamál viðkomandi tölvu. Upphaflega voru tölvur forritaðar með vélamáli sem er einfaldlega listi yfir aðgerðir sem örgjörvi tölvunar á að keyra. Þannig þurfti að umskrifa forrit ef átti að keyra það á nýrri tölvu með ólíkum örgjörva. Með hærrastigs-málum nægir að þýða forritið að nýju.