Fríverslunarsamtök Evrópu
Ríkjasamtök í Evrópu um fríverslun / From Wikipedia, the free encyclopedia
Fríverslunarsamtök Evrópu (EFTA) eru alþjóðasamtök fjögurra ríkja. Meðlimir eru Ísland, Liechtenstein, Sviss og Noregur. Samtökin voru stofnuð þann 3. maí árið 1960 þegar Stokkhólmssamningurinn svonefndi var undirritaður í Stokkhólmi. Tilgangur samtakanna var og er að stuðla að frjálsri verslun milli landanna en auk þess að vera ákveðið mótvægi við hið nýlega stofnaða Evrópubandalag. Öll ríkin eiga aðild að EES nema Sviss en þar í landi var inngöngu hafnað með þjóðaratkvæðagreiðslu. Höfuðstöðvar samtakanna eru í Genf í Sviss.
Staðreyndir strax
Löndin sem eru aðilar að Fríverslunarsamtökum Evrópu Merki EFTA. | |
Aðildarríki | Ísland Liechtenstein Noregur Sviss |
Höfuðstöðvar | Genf |
Leiðtogar - Framkvæmdastjóri |
Henri Gétaz Sviss |
Flatarmál - Alls |
529.600 km² |
Fólksfjöldi - Samtals (2012) - Þéttleiki |
13.389.956 100.6/km² |
VLF - Samtals (2011) - VLF á mann |
$623,5 milljarðar $44.828 |
Stofnun - EFTA-sáttmálinn |
3. maí 1960 4. janúar 1960 |
Gjaldmiðlar aðildarríkja | Íslensk króna (ISK) Norsk króna (NOK) Svissneskur franki (CHF) |
Tímabelti | UTC +0/+1 |
Loka