From Wikipedia, the free encyclopedia
Fundur er formlegur atburður þar sem fólk kemur saman til að mæla um sérstakt atriði. Fundir eru oft haldnir í viðskiptum og stjórnmálum til þess að taka ákvarðanir svo að allir geti sagt skoðanir sínar og gefið hugmyndir. Nú á dögum geta fundir farið fram í síma (símafundur) eða á netinu (veffundur) með nútímatækni, vegna þess að fólk getur talað saman án þess að vera á sama stað. Í dag eru fundir geysilega hversdagslegir og er oft sagt að fundir sem eru ekki skipulagðir og framkvæmdir vel geti verið tíma- og auðlindasóun.
Oft er skrifuð fundarskrá fyrir setningu fundar sem telur þau atriði sem til umræðu skulu vera. Meðan á fundi stendur er oft haldin fundargerð sem skrásetur allt sem er rætt. Yfirleitt eiga viðskiptafundir sér stað í fundarsal sem er sérstakur salur í byggingu með borði, stólum og aðstöðu eins og myndbandssýningarvél og töflu.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.