Gaffall
From Wikipedia, the free encyclopedia
Gaffall er mataráhald með handfangi og tindum á einum enda. Gaffall sem mataráhald hefur verið útbreiddastur á Vesturlöndum en á Austurlöndum fjær hafa matarprjónar verið algengari. Í dag eru gaflar miklu algengari í Austur-Asíu. Tilgangur gaflar er að lyfta mat að munninum eða halda honum föstum meðan hann er skorinn. Hægt er að lyfta mat með því að setja hann á tindana, eða stinga tindum í hann. Oft eru tindarnir lítið bognir. Til eru margs konar gaflar og þeir eru gerðir úr alls konar efnum, hin algengustu eru málmur og plast.