Háskólinn á Akureyri
From Wikipedia, the free encyclopedia
Háskólinn á Akureyri er háskóli í bænum Akureyri á Íslandi sem stofnaður var árið 1987. Hann hefur vaxið mikið síðan og í dag eru þar skráðir í kring um 2.500 stúdentar. Skólinn er meðal þeirra fremstu á Íslandi og hefur verið framsækinn þegar kemur að sveigjanlegu námsfyrirkomulagi.
Stofnaður: | 1987 |
Gerð: | Ríkisháskóli |
Rektor: | Eyjólfur Guðmundsson |
Nemendafjöldi: | 2000 |
Staðsetning: | Akureyri, Ísland |
Vefsíða |
Sveigjanlegt nám er stór kostur við Háskólann á Akureyri. Fjölbreyttar og nútímalegar kennslu- og námsaðferðir eru notaðar við miðlun námsefnis.
Allt grunnám er í boði sem sveigjanlegt nám. Það þýðir að stúdentar þurfa ekki endilega að vera búsettir á Akureyri heldur koma í háskólann í sérstakar námslotur þar sem megináhersla er lögð á verkefnavinnu og umræður. Allir fylgja sömu námskránni og námskröfur eru þær sömu.
Í námslotunum gefst þér tækifæri til að hitta kennara, stúdenta og annað starfsfólk háskólans og tengjast enn betur háskólasamfélaginu.