![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3e/Haikou_skyline_6_-_2009_09_07.jpg/640px-Haikou_skyline_6_-_2009_09_07.jpg&w=640&q=50)
Haikou
höfuðborg og fjölmennasta borg Hainan eyju og héraðs við suðurströnd Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Haikou (kínverska: 海口; rómönskun: Hǎikǒu; Hai-k’ou), er höfuðborg og fjölmennasta borg Hainan eyju og héraðs við suðurströnd Alþýðulýðveldisins Kína. Hún er stjórnsýslu-, efnahags- vísinda- menningar- og samgöngumiðstöð héraðsins. Borgin er við norðurströnd Hainan eyju, við ósa Nandu-ár. Norðurhluti borgarinnar er hverfið á Haidian-eyju, sem er aðskilið frá meginhluta Haikou með ánni Haidian, hliðarár Nandu. Haikou, sem einnig er þekkt sem „Kókoshnetuborgin“, er hitabeltisborg með góðum strandsvæðum og þægilegu loftslagi. Árið 2017 bjuggu þar um 2.3 milljónir íbúa.
![Mynd frá skýjakljúfum Haikou borgar í Hainan héraði í Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/3e/Haikou_skyline_6_-_2009_09_07.jpg/640px-Haikou_skyline_6_-_2009_09_07.jpg)
![Staðsetning Haikou borgar í Hainan héraði í Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/65/Haikou-location-MAP-in-Hainan-Province-China.jpg/640px-Haikou-location-MAP-in-Hainan-Province-China.jpg)
![Landakort sem sýnir legu Haikou borgar í Hainan héraði í Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/5c/Location_of_Haikou_Prefecture_within_Hainan_%28China%29.png/640px-Location_of_Haikou_Prefecture_within_Hainan_%28China%29.png)
![Mynd frá verslunargötu í Franska nýlenduhverfinu í Haikou borg á Hainan eyju í Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/45/Bo%27ai_Road_area_-_05.jpg/640px-Bo%27ai_Road_area_-_05.jpg)
![Mynd af Xiuying höfn í Haikou borg á Hainan eyju í Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/6d/Haikou_Xiuying_Port_04.jpg/640px-Haikou_Xiuying_Port_04.jpg)
![Mynd af fiskimarkaðinum í Haikou borg á Hainan eyju í Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/17/Wholesale_fish_market_at_Haikou_New_Port_-_05.jpg/640px-Wholesale_fish_market_at_Haikou_New_Port_-_05.jpg)