![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c8/Harvey_Weinstein_C%25C3%25A9sars_2014_%2528cropped%2529_%2528centered%2529.jpg/640px-Harvey_Weinstein_C%25C3%25A9sars_2014_%2528cropped%2529_%2528centered%2529.jpg&w=640&q=50)
Harvey Weinstein
From Wikipedia, the free encyclopedia
Harvey Weinstein (f. 19. mars 1952) er bandarískur fyrrum kvikmyndaframleiðandi og dæmdur kynferðisafbrotamaður.
Harvey Weinstein | |
---|---|
![]() Harvey Weinstein árið 2014. | |
Fæddur | 19. mars 1952 (1952-03-19) (72 ára) |
Þjóðerni | Bandarískur |
Menntun | Háskólinn í Buffalo |
Störf | Kvikmyndaframleiðandi |
Þekktur fyrir | Að fremja fjölda kynferðisafbrota sem urðu ein kveikjan að MeToo-hreyfingunni |
Maki | Eve Chilton (g. 1987; sk. 2004) Georgina Chapman (g. 2007; sk. 2021) |
Börn | 5 |
Ásamt bróður sínum, Bob Weinstein, stofnaði Harvey Weinstein kvikmyndafélagið Miramax Films og The Weinstein Company. Þeir bræðurnir framleiddu fjölda vinsælla kvikmynda á borð við Scream-myndirnar, kvikmyndir Quentins Tarantino, The English Patient, Chicago, The Aviator, The Fighter, The King's Speech og The Artist. Weinstein var meðal framleiðenda sem tóku við Óskarsverðlaunum í flokki bestu kvikmyndarinnar fyrir myndina Shakespeare in Love árið 1998.
Árið 2017 stigu rúmlega áttatíu konur úr kvikmyndaiðnaðinum fram og upplýstu ein af annarri um að Weinstein hefði beitt þær kynferðislegu ofbeldi og kynferðislegri áreitni. Uppljóstranir um kynferðisafbrot Weinsteins, sem höfðu verið opið leyndarmál í Hollywood um árabil, urðu ein kveikjan að Me too-byltingunni, þar sem konur voru hvattar til að segja frá kynferðisofbeldi sem þær hefðu verið beittar og skila skömminni til gerenda.
Í febrúar 2020 var Weinstein dæmdur sekur fyrir kynferðisbrot og nauðgun. Hann var síðan dæmdur í 23 ára fangelsi í mars sama ár en sá dómur var ógiltur árið 2024. Hann hlaut sextán ára dóm til viðbótar fyrir aðra nauðgun árið 2023.