![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e2/Hrw_logo.svg/langis-640px-Hrw_logo.svg.png&w=640&q=50)
Mannréttindavaktin
From Wikipedia, the free encyclopedia
Mannréttindavaktin (enska: Human Rights Watch) eru alþjóðleg samtök sem berjast fyrir auknum mannréttindum og fylgjast með þróun mannréttinda og mannréttindabrota um allan heim. Samtökin eru óháð ríkisstjórnum og með aðalstöðvar í New York í Bandaríkjunum.
Mannréttindavaktin Human Rights Watch | |
---|---|
![]() | |
Skammstöfun | HRW |
Stofnun | 1978; fyrir 46 árum (1978) |
Gerð | Alþjóðleg mannréttindasamtök |
Höfuðstöðvar | New York-borg, Bandaríkjunum |
Lykilmenn | Kenneth Roth (framkvæmdastjóri) James F. Hoge Jr. (formaður) |
Vefsíða | www.hrw.org |
Samtökin voru upphaflega stofnuð 1978 undir heitinu Helsinkivaktin (e: Helsinki Watch) til að fylgjast með framferði Sovétríkjanna sem höfðu skrifað undir Helsinki-sáttmálann. Fleiri vaktir voru stofnaðar sem fylgdust með öðrum ríkjum og 1988 sameinuðust þær undir núverandi heiti.
Sérstaða Mannréttindavaktarinnar felst einkum í mannréttindaskýrslum sem þykja ítarlegar og áreiðanlegar vegna mikillar vinnu sem er lögð í þær. Skýrslurnar varpa oft ljósi á mannréttindabrotum og leiða til þrýstings á viðkomandi stjórnvöld og önnur samtök til þess að leiðrétta vandann. Jafnrétti kynjanna, jafnrétti vegna kynhneigðar, pyntingar, notkun barna í hernaði, spilling stjórnvalda og dómskerfis eru meðal þeirra mála þar sem samtökin hafa verið hvað virkust.