Johan Cruyff
hollenskur knattspyrnumaður og -stjóri (1947-2016) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Johan Cruyff (Hendrik Johannes Cruijff, fæddur 25. apríl 1947 í Amsterdam - 24. mars 2016) var hollenskur knattspyrnumaður og þjálfari, sem lék aðallega með Ajax Amsterdam og Barcelona. Hjá báðum félögum var hann síðar meir þjálfari. Cruyff hefur löngum þótt með snjallasti miðvörðum. Þrisvar var hann kjörinn knattspyrnumaður ársins í Evrópu og einnig knattspyrnumaður aldarinnar. Með landsliði Hollands komst Cruyff í úrslit á HM 1974.