![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/13/Joseph-Louis_Lagrange.jpeg/640px-Joseph-Louis_Lagrange.jpeg&w=640&q=50)
Joseph-Louis Lagrange
From Wikipedia, the free encyclopedia
Joseph-Louis Lagrange (25. janúar 1736 – 10. apríl 1813) var franskur stærðfræðingur. Sumir telja hann einn mesta stærðfræðing 18. aldar, jafnvel næstan á eftir Euler. Hann fæddist í Torino á Ítalíu og bjó þar fyrri hluta ævinnar, en settist síðar að í París og er jafnan talinn franskur.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/13/Joseph-Louis_Lagrange.jpeg/320px-Joseph-Louis_Lagrange.jpeg)
Hann tók við af Euler sem prófessor við háskólann í Berlín og þar eru flest stórvirki hans unnin. Þau ná yfir öll svið stærðfræði þeirra tíma. Hann er þekktastur fyrir niðurstöður sínar á sviði talnafræði og algebru auk ritsins Mécanique analytique, sem fjallar um aflfræði og kom út 1788. Lagrange-fallið og Lagrange rithátturinn eru nefnd í höfuðið á honum.