Jóhanna af Örk
From Wikipedia, the free encyclopedia
Jóhanna af Örk (franska: Jeanne d'Arc; um 1412 – 30. maí 1431), kölluð mærin frá Orléans, var frönsk frelsishetja og dýrlingur. Hún hélt því fram að hún hefði fengið sýnir frá Guði sem skipuðu henni að vinna Frakkland undan enskum yfirráðum seint í Hundrað ára stríðinu. Hinn ókrýndi Karl 7. sendi hana til umsátursins um Orléans þar sem hún varð fræg fyrir að aflétta umsátrinu á aðeins níu dögum. Nokkrir fleiri sigrar leiddu til þess að Karl var krýndur í Reims og Frakkar fengu endurnýjað sjálfstraust. Hún var tekin höndum af Englendingum nærri Compiègne og var dæmd fyrir villutrú af dómi undir enska landstjóranum Jóhanni hertoga af Bedford sem lét brenna hana í Rúðuborg. Tuttugu og fjórum árum síðar veitti Kallixtus 3. páfi henni uppreist æru. Hún var tekin í dýrlinga tölu af Benedikt 15. 16. maí 1920.