Kóreuskagi
landsvæði í Austur-Asíu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Kóreuskagi er skagi í Austur-Asíu sem nær um 1.100 km suður frá meginlandi Asíu til Kyrrhafsins. Í kringum skagann eru Japanshaf (einnig kallað Austurhafið) fyrir austan, Gulahafið fyrir vestan og Kóreusundið, sem tengir fyrstu tvö höfin saman. Þangað til seinni heimsstyrjöldinni lauk var Kórea eitt ríki sem náði meira eða minna yfir Kóreuskagann. Frá lokum Kóreustríðsins árið 1953 hefur Alþýðulýðveldið Kórea stjórnað norðurhluta skagans en Lýðveldið Kórea suðurhluta hans.
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Kóreuskaga.